25 Febrúar 2022 10:26

Brot 43 ökumanna voru mynduð í Stekkjarbakka í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stekkjarbakka, við Heimahvamm, í vesturátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 598 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75.

Vöktun lögreglunnar í Stekkjarbakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.