7 Júlí 2022 22:02

Brot 55 ökumanna voru mynduð í Stekkjarbakka í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stekkjarbakka í austurátt, að Hamrastekk. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 353 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 100.

Vöktun lögreglunnar í Stekkjarbakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.