9 Febrúar 2023 09:11

Brot 53 ökumanna voru mynduð í Stekkjarbakka í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stekkjarbakka, við Heimahvamm, í vesturátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 561 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar í Stekkjarbakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.