25 Janúar 2024 11:35
Brot 51 ökumanns var myndað í Stekkjarbakka í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stekkjarbakka, við Heimahvamm, í vesturátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 409 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75.
Vöktun lögreglunnar í Stekkjarbakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.