28 Apríl 2009 12:00

Tvö hundruð og átján voru staðnir að hraðakstri í Stekkjarbakka í Reykjavík í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 218 ökumanna mynduð í Stekkjarbakka en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, að Vatnsveituvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 674 ökutæki þessa akstursleið og því óku 32% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tuttugu og sjö óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 83.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Stekkjarbakka og þá óku 40% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var minni umferð um götuna (533 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var 64 km/klst.