24 Maí 2011 12:00

Brot 187 ökumanna voru mynduð í Stekkjarbakka í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stekkjarbakka í vesturátt, við Vatnsveituveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 580 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tuttugu og fjórir óku á 70 km hraða eða meira.

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið hátt, eða 32-40% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið á bilinu 64-65 km/klst.