30 Mars 2012 12:00

Brot 177 ökumanna voru mynduð í Stekkjarbakka í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stekkjarbakka í vesturátt, við Vatnsveituveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 633 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Þrjátíu og tveir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 89. 

Vöktun lögreglunnar í Stekkjarbakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.