10 Febrúar 2015 14:50

Brot 44 ökumanna voru mynduð í Stekkjarbakka í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stekkjarbakka í vesturátt, við Vatnsveituveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 404 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 92. 

Vöktun lögreglunnar í Stekkjarbakka, en dimm él gengu yfir á meðan henni stóð, er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.