16 Október 2008 12:00

Brot 166 ökumanna voru mynduð í Stekkjarbakka í Breiðholti í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stekkjarbakka í austurátt, við veitustöð OR. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 413 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fjörutíu og tveir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 86.