29 Nóvember 2007 12:00

Brot 153 ökumanna voru mynduð í Stekkjarbakka í morgun. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stekkjarbakka í vesturátt á móts við Grænastekk. Á einni klukkustund fóru 480 ökutæki þessa akstursleið og því ók nærri þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Þrjátíu og einn ók á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók var mældur á 94.