21 Mars 2013 12:00

Einn ökumaður var staðinn að hraðakstri í Stórakrika í Mosfellsbæ í gær. Sá mældist á 47 km hraða, en þarna er 30 km hámarkshraði. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stórakrika í vesturátt, en á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru reyndar aðeins 3 ökutæki þessa akstursleið.

Vöktun lögreglunnar í Stórakrika er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.