9 Apríl 2014 12:00

Brot 11 ökumanna voru mynduð í Straumi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Straum í vesturátt, við Bleikjukvísl. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 96 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar í Straumi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.