2 Júní 2014 12:00

Brot 14 ökumanna voru mynduð í Suðurhlíð í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurhlíð í suðurátt, við Víðihlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 27 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 52%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 61.

Vöktun lögreglunnar í Suðurhlíð er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.