25 Apríl 2008 12:00

Brot 73 ökumanna voru mynduð í Suðurhólum í Breiðholti á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurhóla í vesturátt, að Álftahólum. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 303 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sjö óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 53.      

Eftirlit lögreglunnar í Suðurhólum er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Í Suðurhólum var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.