13 Ágúst 2019 15:32

Brot 37 ökumanna voru mynduð í Þverbrekku í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þverbrekku í suðurátt, á móts við Fögrubrekku. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 83 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 45%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrír óku á 50 km hraða eða meira, en sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar í Þverbrekku er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.