30 September 2022 09:16

Brot 4 ökumanna voru mynduð í Túngötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Túngötu í vesturátt, við Landakot. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 106 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.

Vöktun lögreglunnar í Túngötu er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.