22 Nóvember 2013 12:00

Brot 24 ökumanna voru mynduð í Vatnagörðum í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vatnagarða í suðurátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 189 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.