21 Mars 2014 12:00

Brot 66 ökumanna voru mynduð í Vatnagörðum í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vatnagarða í suðurátt, á milli Sægarða og Sundaborgar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 201 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 78.

Vöktun lögreglunnar í Vatnagörðum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.