17 Ágúst 2016 11:24

Brot 43 ökumanna voru mynduð í Vatnagörðum í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vatnagarða í austurátt, á móts við Vatnagarða 10. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 202 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 79.

Vöktun lögreglunnar í Vatnagörðum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.