7 Febrúar 2024 09:36

Brot 5 ökumanna voru mynduð í Vatnagörðum í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vatnagarða í suðurátt, á móts við Vatnagarða 20. Á hálftíma, eftir hádegi, fóru 99 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 66.

Vöktun lögreglunnar í Vatnagörðum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.