9 Ágúst 2013 12:00

Brot 50 ökumanna voru mynduð í Vatnagörðum í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vatnagarða í suðurátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 226 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 77.

Vöktun lögreglunnar í Vatnagörðum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.