30 Apríl 2020 18:22

Brot 13 ökumanna voru mynduð í Vefarastræti í Mosfellsbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vefarastræti í vesturátt, við Varmárveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 46 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.

Vöktun lögreglunnar í Vefarastræti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.