21 September 2022 15:52

Brot 8 ökumanna voru mynduð í Vefarastræti í Mosfellsbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vefarastræti í austurátt, á móts við Vefarastræti 20. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 53 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 59.

Vöktun lögreglunnar í Vefarastræti er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, regn og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.