29 Mars 2019 12:35

Brot 12 ökumanna voru mynduð í Vefarastræti í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vefarastræti í vesturátt, á móts við Vefarastræti 16. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 43 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 46.

Vöktun lögreglunnar í Vefarastræti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að éljagangur og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.