24 Júní 2010 12:00

Brot 8 ökumanna voru mynduð í Vesturbergi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturberg í norðurátt, miðja vegu á milli Suðurhóla og Norðurfells. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 198 ökutæki þessa akstursleið og því ók lítill hluti ökumanna, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 60 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 66.

Eftirlit lögreglunnar í Vesturbergi var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum en þeir hafa kvartað undan hraðakstri á þessum stað.