12 Júní 2015 17:49

Brot 24 ökumanna voru mynduð í Vesturvör í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturvör í austurátt, á móts við Vesturvör 7. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 123 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75.

Vöktun lögreglunnar í Vesturvör er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.