6 Október 2014 12:00

Brot 28 ökumanna voru mynduð í Vesturvör í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturvör í austurátt, á móts við Vesturvör 7. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 161 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 80. 

Vöktun lögreglunnar í Vesturvör er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.