6 September 2010 12:00

Brot 7 ökumanna voru mynduð við Árkvörn í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Streng í vesturátt, við Árkvörn. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 26 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 40 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar við Árkvörn, en við götuna er Ártúnsskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.