4 September 2007 12:00

Brot 39 ökumanna voru mynduð á Kristnibraut í Grafarholti í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, þ.e. framhjá Ingunnarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 70 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var liðlega 46 km/klst en sá sem hraðast ók var mældur á 61. Á þessum hluta Kristnibrautar er 30 km hámarkshraði og er það merkt vel og greinilega.