11 Mars 2009 12:00

Fjórir ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Hjallabraut í Hafnarfirði í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 4 ökumanna mynduð á Hjallabraut, sunnan Skjólvangs, en á þessum stað er leikskóli við götuna. Fylgst var með ökutækjum, fyrir hádegi, sem var ekið í suðurrátt en þarna er 50 km hámarkshraði. Á einni klukkustund fóru 30 ökutæki þessa akstursleið og því óku 13% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Sá sem hraðast ók mældist á 63. 

Lögreglan var einnig við hraðamælingar á Drekavöllum í Hafnarfirði eftir hádegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, við Hraunvallaskóla, en þarna er 30 km hámarkshraði. Á einni klukkustund fóru 14 ökutæki þessa akstursleið en þeim var öllum ekið á löglegum hraða.

Fyrir nákvæmlega ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sömu stöðum en þá óku hlutfallslega mun fleiri of hratt eða yfir afskiptahraða á Hjallabraut. Líkt og í fyrra virðast ákaflega löghlýðnir ökumenn fara um Drekavelli en þá voru sömuleiðis allir á löglegum hraða.