13 Mars 2008 12:00

Fjórtán ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Hjallabraut í Hafnarfirði í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar.

Eins og fyrr sagði voru brot 14 ökumanna mynduð á Hjallabraut, sunnan Skjólvangs, en á þessum stað er leikskóli við götuna. Fylgst var með ökutækjum, fyrir hádegi, sem var ekið í suðurrátt en þarna er 50 km hámarkshraði. Á einni klukkustund fór 41 ökutæki þessa akstursleið og því ók um þriðjungur ökumanna, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Átta óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 85. 

Lögreglan var einnig við hraðamælingar á Drekavöllum í Hafnarfirði eftir hádegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, við Hraunvallaskóla, en þarna er 30 km hámarkshraði. Á einni klukkustund fóru 12 ökutæki þessa akstursleið en þeim var öllum ekið á löglegum hraða.