5 Júlí 2019 15:43

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var aftur við hraðamælingar á Hringbraut í Reykjavík í dag, en um er að ræða vegkafla á milli Sæmundargötu og Ánanausta þar sem leyfður hámarkshraði var nýverið lækkaður úr 50 í 40 í kjölfar umferðarslyss sem varð á þessum slóðum, en í framhaldinu urðu töluverðar umræður um leiðir til úrbóta. Á einni klukkustund eftir hádegi í dag voru mynduðu brot 122 ökumanna, sem óku Hringbraut í austurátt, við Vesturvallagötu. Á umræddum tíma fóru 475 ökutæki þessa akstursleið og því var brotahlutfallið 26%, en meðalhraði hinna brotlegu var 54 km/klst. Nítján óku á 60 km hraða eða meira, fjórir á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 80. Þess má geta að við þrjár hraðamælingar á sama stað í ársbyrjun, þegar leyfður hámarkshraði var 50, var brotahlutfallið 2  – 4%.

Ekki verður annað sagt en að niðurstaða dagsins valdi vonbrigðum, en við hraðamælingar á þessum vegkafla við Furumel og Brávallagötu í vikunni, og sagt var frá í gær, var brotahlutfallið 21% og 16%. Til samanburðar var brotahlutfallið á sömu stöðum 5 – 8% þegar leyfður hámarkshraði var 50.