3 September 2008 12:00

Brot 31 ökumanns var myndað í Hlíðarbergi í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hlíðarberg í vesturátt, við Setbergsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 110 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 54. Á þessum stað í Hlíðarbergi eru bæði merktar gangbrautir og hraðahindranir. Mörg börn voru á heimleið frá skóla á meðan vöktun lögreglunnar stóð.

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Hraunbrún í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunbrún í suðurátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 39 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 51%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 49 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Átta óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 57. Á Hraunbrún eru bæði merktar gangbrautir og hraðahindranir en yfir götuna fara m.a. skólabörn í Víðistaðaskóla.