27 Maí 2005 12:00

Í þessari viku hefur lögreglan í Reykjavík verið með hraðamælingar í íbúðarhverfum í  Mosfellsbæ.  Alls voru 1022 ökutæki mæld en kærðir voru aðeins 36 og hraði almennt ekki mikill.  Þær götur þar sem mælingar fóru fram voru: Baugshlíð, Álfatangi, Skeiðholt, Langatangi, Bogatangi, Reykjavegur og Vesturlandsvegur í Ullarnesbrekku. Niðurstaðan er að mati lögreglu ánægjuleg og áherslan í næstu viku verður í Breiðholti í hverfum 109 og 111.