19 Apríl 2013 12:00

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Skipasundi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skipasund í suðurátt, að Drekavogi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru reyndar aðeins 5 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða, en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Skipasundi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.