24 Febrúar 2020 15:28

Þann 1. mars næstkomandi verða tvær hraðamyndavélar á Hringvegi við bæinn Tún í Flóa austan Selfoss teknar í notkun.

Uppsetning vélanna er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og er tilgangurinn sá að draga úr ökuhraða á þjóðvegum og fækka umferðarslysum. Umferðaröryggisáætlun er hluti samgönguáætlunar.

Samgönguráðuneytið, ríkislögreglustjóri, Samgöngustofa og Vegagerðin vinna að uppsetningu hraðamyndavélanna.

Um er að ræða stafræna myndatöku þar sem upplýsingar um hraðabrot eru sendar samstundis til lögreglunnar. Ekki er tekin mynd nema um brot sé að ræða.