8 Ágúst 2013 12:00

Óskað var eftir aðstoð lögreglu að húsi í Hafnarfirði um kaffileytið í gær. Þar hafði ungur maður brugðið sér í bað, en móðir hans varð áhyggjufull þegar einkennileg hljóð bárust frá baðherberginu. Hún reyndi að komast þar inn, en dyrnar voru læstar og hvorki bank á hurðina né hróp konunnar virtust ná til piltsins og því hringdi móðirin í lögregluna. Tveir laganna verðir héldu strax á staðinn, en þegar þeir áttu skammt eftir á vettvang bárust þær upplýsingar í talstöðina að hættan væri liðin hjá og málið því leyst. Eins og stundum áður var einföld skýring á öllu saman, en hún var sú að pilturinn hafði sofnað í baðinu en hljóðin sem frá því bárust reyndust vera hroturnar í unga manninum.