5 Október 2009 12:00

Mikið var um stöðubrot við Laugardalsvöllinn og í nágrenni hans á laugardag og hafði lögreglan afskipti af fjölmörgum ökutækjum vegna þessa. Umráðamönnum þessara ökutækja er gert að greiða 2500 kr. en gjaldið rennur í Bílastæðasjóð. Að þessu sinni eru það vel á annað hundrað ökumenn sem þurfa að borga fyrir hugsunarleysið. Það skal áréttað að margítrekað hefur ökumönnum sem eiga leið um Laugardalinn verið bent á að nýta þau bílastæði sem þar eru í stað þess að leggja ólöglega á eða við götur á svæðinu. Sömuleiðis er iðulega lagt ólöglega á ýmiss grassvæði sem þarna eru. Sem fyrr voru bílastæði á svæðinu ekki fullnýtt, líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd sem var tekin eftir hádegi á laugardag. Myndin er tekin á bílastæði sunnanmegin á milli vesturstúku Laugardalsvallarins og Reykjavegar en þessa sjón var að sjá á fleiri bílastæðum á svæðinu.