14 Janúar 2013 12:00

Eldri maður var bitinn af hundi í Hafnarfirði á föstudag. Hann var á göngu í íbúðahverfi þegar þetta gerðist en maðurinn var bitinn í fótlegginn svo á sá. Í kjölfarið leitaði hann sér læknisaðstoðar, en tilkynnt var um málið til lögreglu í morgun. Umræddur hundur var í fylgd með konu sem engin deili er vitað á.