15 Apríl 2009 12:00

Tuttugu og tveir voru handteknir í aðgerð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á Vatnsstíg í Reykjavík í morgun. Þar hafði hópur fólks komið sér fyrir í óleyfi í húsi við götuna og neitaði að yfirgefa það þrátt fyrir fyrirmæli lögreglu. Um var að ræða fimmtán karla og sjö konur en fólkið er flest á þrítugsaldri. Hinir handteknu voru fluttir á lögreglustöð til yfirheyrslu. Við aðgerðina í morgun naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar lögreglumanna frá embætti ríkislögreglustjóra.