13 Nóvember 2009 12:00

Fíkniefni fundust við húsleit í íbúð í Hafnarfirði í gærkvöld. Um var að ræða bæði amfetamín og marijúana. Á sama stað var einnig lagt hald á töluvert af þýfi en verðmæti þess nemur nokkrum milljónum króna. Húsráðandi, karl á fimmtugsaldri, var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins. Húsleitin var framkvæmd að undangengnum dómsúrskurði.

Á meðal þess sem var haldlagt er gítar af gerðinni Fender Stratocaster en honum hefur nú verið komið aftur í réttar hendur. Í vörslu lögreglu eru hinsvegar eftirtaldir hlutir: Fender Stratocaster Squier Silver Series gítar, Pevey magnari, Vox hátalari, Sub bass 2130 bassabox af tegundinni Wharfedale Loudspeakers Limited og Raymond Weil Geneve Automatic armbandsúr. Þeir sem sakna þessara hluta geta haft samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000 alla virka daga frá kl. 8-16. Óskað verður eftir staðfestingu á eignarhaldi.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.