7 Nóvember 2014 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á skammbyssu, sverð og exi, auk fleiri vopna, og talsvert magn stera í töflu- og vökvaformi við húsleit í Kópavogi í morgun. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, var handtekinn í þágu rannsóknarinnar, sem beinist að brotum á vopnalögum og sölu og dreifingu á steralyfjum. Húsleitin var framkvæmd að undangengnum dómsúrskurði, en við aðgerðina naut lögreglan aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra.