19 September 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Langholtshverfi í Reykjavík á föstudag. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á kannabisplöntur, græðlinga og ýmsan búnað tengdan starfseminni. Við leitina fannst einnig marijúana og amfetamín. Karl um þrítugt var handtekinn í þágu rannsóknarinnar.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.