18 September 2012 12:00

Karl um tvítugt var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í gæsluvarðhald í fjórar vikur að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Maðurinn var handtekinn í aðgerðum lögreglu í gær þegar hún framkvæmdi húsleitir í Hafnarfirði og Mosfellsbæ. Lagt var hald á fíkniefni, þýfi, skotvopn og sprengiefni, en það síðastnefnda fannst í félagsheimili Outlaws í Hafnarfirði. Sex aðrir voru handteknir í þágu rannsóknarinnar en fólkið tengist allt Outlaws. Að aðgerðunum stóðu lögregluliðin á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra og tollyfirvöld.