4 Nóvember 2020 18:10

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur framkvæmt húsleitir á tveimur stöðum í Mosfellsbæ í dag að undangengnum dómsúrskurðum. Einn hefur verið handtekinn í þessum aðgerðum og lagt var hald á muni, sem grunur leikur á að séu þýfi, á öðrum staðnum.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.