18 September 2012 12:00

Sjö voru handteknir þegar lögreglan framkvæmdi tvær húsleitir í Hafnarfirði og Mosfellsbæ í gær. Á báðum stöðum var lagt hald á fíkniefni en á öðrum þeirra var jafnframt að finna verulagt magn af því sem talið er vera þýfi úr innbrotum á bæði höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Á síðarnefnda staðnum var einnig lagt hald á skotvopn en á hinum tók lögreglan ennfremur sprengiefni í sína vörslu. Hinir handteknu, sem flestir eru á þrítugsaldri, tengjast allir Outlaws. Að aðgerðunum stóðu lögregluliðin á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra og tollyfirvöld.