11 Febrúar 2011 12:00

Mikið hvassviðri var á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt og sinnti lögreglan allmörgum útöllum vegna þessa. Í morgun var enn víða hvasst en skólahald var þó með eðlilegum hætti að því undanskildu að kennsla féll niður í Klébergsskóla á Kjalarnesi. Gert er ráð fyrir að eftir hádegi verði veður orðið skaplegra en frekari veðurupplýsingar má nálgast hér á heimasíðu Veðurstofu Íslands.