14 Mars 2018 20:26

Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á fjölda innbrota í umdæminu að undanförnu miðar vel. Framkvæmdar hafa verið húsleitir allvíða á höfuðborgarsvæðinu og lagt hefur verið hald á mikið af þýfi. Unnið er að því að hafa samband við þolendur innbrota svo hægt sé að koma hlutum aftur í réttar hendur og vel hefur gengið í þeim efnum, en þessi vinna er óneitanlega nokkuð tímafrek. Lögregla telur víst að um skipulagða brotastarfsemi sé að ræða þegar áðurnefnd innbrot eru annars vegar.

Hópur lögreglumanna hefur unnið sleitulaust að rannsókninni, en starfsmenn annarra deilda embættisins hafa jafnframt verið kallaðir að verkefninu eftir því sem við á. Rannsóknin er viðamikil, en á þriggja mánaða tímabili frá desember til febrúar voru tæplega 130 innbrot í heimahús tilkynnt til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, þar af um 50 í síðasta mánuði. Í mars hafa 5 innbrot í heimahús verið tilkynnt til lögreglu og því virðist sem hægt hafi á þessari óheillaþróun. Ljóst er að verðmæti stolinna muna hleypur á milljónum og í sumum tilvikum er jafnframt um að ræða muni sem hafa mikið tilfinningalegt gildi fyrir eigendur þeirra. Auk húsleita hefur lögreglan stöðvað póstsendingar, sem voru á leið úr landi og innihéldu þýfi. Eins og fram hefur komið hafa flest innbrotanna átt það sameiginlegt að vera framin á daginn og að stolið sé skartgripum og peningum, en önnur verðmæti látin ósnert. Oftar en ekki virðast skartgripir og peningar á heimilum vera geymdir í svefnherbergjum og þangað hafa þjófarnir leitað.

Þrír karlar voru handteknir í austurborginni á föstudag í þágu rannsóknarinnar og samdægurs úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald, eða til 16. mars, á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Áður höfðu fjórir karlar verið handteknir vegna málsins og úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Einum þeirra hefur verið sleppt og annar er vistaður í úrræði á vegum barnaverndaryfirvalda. Þeir sex, sem eru í haldi lögreglu í þágu rannsóknarinnar, eru allir erlendir ríkisborgarar.

Sem fyrr er ítrekað að fólk láti lögreglu vita um grunsamlegar mannaferðir (taki ljósmyndir ef slíkt er mögulegt) og að það skrifi líka hjá sér, t.d. bílnúmer eða jafnvel lýsingar á fólki, ef eitthvað óvenjulegt á sér stað í nánasta umhverfi þess. Innbrotsþjófar fylgjast gjarnan með húsum áður en þeir láta til skarar skríða, hringja jafnvel dyrabjöllunni og þykjast vera að spyrja eftir einhverjum, og því er mikilvægt að hafa þessi atriði í huga. Munið að það er betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna með upplýsingar af þessu tagi en einu sinni of sjaldan. Lögreglan vill ennfremur minna á mikilvægi þess að fólk gangi tryggilega frá heimilum sínum, t.d. að loka gluggum, þegar það fer að heiman og ekki er úr vegi að tilkynna nágrönnum um slíkt, en nágrannavarsla getur skipt sköpum þegar kemur að því að upplýsa innbrot eða koma í veg fyrir þau. Sérstaklega er minnt á að útiljós séu kveikt þar sem þau eru til staðar, hvort sem um ræðir bakatil við hús eða að framanverðu. Slíkt einfaldar nágrönnum að sjá umferð/mannaferðir við húsin. Sömuleiðis er mikilvægt að fólk upplýsi ekki um fjarveru sína fyrir allra augum þegar farið er í frí, t.d. með tilkynningu á samfélagsmiðlum.

Upplýsingum má koma á framfæri í síma 444 1000, með einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu vegna yfirstandandi innbrots skal undantekningarlaust hringja í 112.