22 Janúar 2008 12:00

Að undanförnu hefur verið tilkynnt um nokkur innbrot í íbúðarhús á höfuðborgarsvæðinu að degi til virka daga meðan íbúarnir eru að heiman. Ætla má að sami eða sömu aðilar séu að verki. Ummerki eru jafnan þau sömu; spenntur er upp opnanlegur gluggi eða bakdyr með áhaldi, einn maður fer inn, rótar í skúffum í leit að peningum, skartgripum, úrum eða öðrum verðmætum, safnar saman fartölvu, myndavél, skjávarpa eða öðrum tækjabúnaði, lætur munina í skúffu eða annað nærtækt og fer með þýfið út um dyrnar. Brýnt er fyrir fólki að láta lögregluna vita þegar í stað ef það verður vart grunsamlegra mannferða eða ef grunsemdir vakna um tortryggilega háttsemi.