7 Mars 2018 16:57

Karlmaður var í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í níu daga áframhaldandi gæsluvarðhald, eða til 16. mars, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn var handtekinn í síðustu viku í þágu rannsóknar lögreglu á innbrotum í umdæminu. Annar maður, sem var handtekinn af sama tilefni, er laus úr haldi lögreglu.